Dagur íslenskrar tungu
Í tilefni af degi íslenskrar tungu kom Sigrún Eldjárn rithöfundur í Akurskóla og las upp úr bókum sínum fyrir nemendur í 1. bekk ásamt börnum úr leikskólunum Holti og Akri. Nemendur sýndu efninu áhuga og voru prúð og stillt. Kennarar í 1. bekk nota bækur Sigrúnar óspart í Byrjendalæsi og njóta þær mikilla vinsælda.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


