Dagur íslenskrar tungu
Í dag á Degi íslenskrar tungu gera nemendur og starfsfólk Akurskóla sér dagamun á ýmsan hátt.  Nemendur 6. og 7. bekkjar komu saman á sal í upphafi dags og Stóra upplestarkeppnin var formlega sett af stað.  Af því tilefni las Karen Mist Arngeirsdóttir sigurvegari Litlu upplestarkeppninar á síðasta skólaári, tvö ljóð fyrir nemendur.  Að loknum upplestri Karenar stigu nemendur á svið með leikþætti og söngatriði með léttu framsagnarívafi sem þeir voru búnir að undirbúa í tilefni dagsins. Huginn Þór Grétarsson rithöfundur kemur í heimsókn kl. 10:00 og les úr verkum sínum fyrir nemendur 1. - 3. bekkjar og nemendur úr Leikskólunum Holti og Akri. 
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


