16. nóvember 2026

Dagur íslenskrar tungu í Akurskóla

Dagur íslenskrar tungu í Akurskóla

Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í Akurskóla 16. nóvember með höfundarheimsókn, atriðum á sal og spurningakeppni.

Í tilefni dagsins heimsótti Áslaug Jónsdóttir rithöfundur nemendur í 1. bekk. Skólahópar leikskólanna Akurs og Holts komu einnig í heimsókn og hlýddu á upplestur Áslaugar ásamt 1. bekkingum.

Nemendur í 2.–6. bekk fluttu skemmtileg atriði á sal og í 7.–10. bekk var spurningakeppni milli nemenda og kennara. Að þessu sinni höfðu kennarar betur eftir jafna keppni. Einnig var Stóra upplestrarkeppnin formlega sett með táknrænum hætti þar sem fulltrúar 8. bekkjar létu upplestrarpúltið ganga til fulltrúa 7. bekkjar. 

Við þökkum Áslaugu og skólahópum Akurs og Holts kærlega fyrir heimsóknina og nemendum og kennurum fyrir þátttökuna.

Myndir í myndasafni skólans. 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla