11. mars 2013

Dansbikarinn hjá Bryn Ballet

Dansbikarinn hjá Bryn Ballet

 

Laugardaginn 9.mars var Bryn Ballet Akademían með danskeppnina „Dansbikarinn“ og áttum við í Akurskóla nokkra fulltrúa í þessari keppni. Laufey Soffía í 10.bekk var ein af þeim en hún sigraði bæði hópakeppnina og einstaklingskeppnina í sínum aldursflokki. Í aldursflokki 9-11 ára í hópakeppninni unnu einnig þrjár stúlkur frá Akurskóla, þær Elíza, Helga og Kiana allar í 5. bekk.

Laufey er búin að æfa dans í 6 ár, Elíza í 8 ár, Helga í 5 ára og Kiana í 3 ár. Til gamans má geta að allir keppendur sömdu sjálfir dansverkin, fundu tónlistina og hönnuðu búningana.  Stelpurnar hafa verið duglegar að dansa fyrir okkur í skólanum á alls kyns viðburðum og óskum við þeim innilega til hamingju með þennan frábæra árangur. Við í Akurskóla erum virkilega stolt af þessum flottu stelpum og hlökkum til þess að fylgjast með þeim í framtíðinni. Enn og aftur til hamingju stelpur. 

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla