14. maí 2014

Ef til vinnustöðvunar kemur

Ef til vinnustöðvunar kemur
Ágætu foreldrar/forráðamenn
 
Á morgun, fimmtudaginn 15. maí, hefur Félag grunnskólakennara boðað til vinnustöðvunar ef ekki næst að semja við launanefnd Sambands sveitarfélaga.
 
Við biðjum foreldra/forráðamenn að fylgjast vel með fréttum í kvöld og einnig strax í fyrramálið. Fylgist einnig með heimasíðu Akurskóla www. akurskoli.is og facebook síðu skólans https://www.facebook.com/akurskoli. 
 
Ef til vinnustöðvunar kemur verður engin kennsla þennan dag en Frístundaskólinn Akurskjól verður opinn frá 13:10 fyrir þau börn sem þar eru skráð. 
 
Ef samningar nást verður hefðbundin kennsla á morgun.
 
Kær kveðja
Skólastjórnendur Akurskóla
 
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla