17. nóvember 2008

Ég og þú, þú og ég

Ég og þú, þú og ég

Mánudagana 17. og 24. nóvember og 1. desember, kl. 17:30 til 19, hefur verið ákveðið að bjóða foreldrum/forráðamönnum nemenda í Húnum, Kettlingum, Hvolpum, Kiðlingum, Kálfum og Kópum að sækja námskeið ásamt börnum sínum.

Í ár verða þrjár stöðvar í boði og munu allir þátttakendur fara einu sinni á hverja stöð.

Á stöð 1 verður dans og kortagerð.

Á stöð 2 verður unnið með pappamassa.

Á stöð 3 verður bakstur í boði.

Enginn kostnaður verður fyrir þátttakendur. Markmiðið er fyrst og fremst að skapa vettvang til þess að gera eitthvað skemmtilegt með börnum og foreldrum barna í 1. – 3. bekk. Athugið að námskeiðið er fyrir börn og foreldra svo börn geta ekki mætt ein á námskeiðið. Hægt er að skrá sig á námskeið til hádegis í dag með því að senda póst á hrafnhildur.gunnarsdottir@akurskoli.is

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla