Ég og þú, þú og ég
Miðvikudagana 4., 11. og 18. mars hefur verið ákveðið að bjóða foreldrum og nemendum að sækja námskeið saman. Í ár verða þrjár stöðvar í boði og munu allir þátttakendur fara einu sinni á hverja stöð. Það sem er í boði er dans, hvernig við búum til ávaxtadrykk og borðtennis sem verður í Fjörheimum. Enginn kostnaður verður fyrir þátttakendur. Markmiðið er fyrst og fremst að skapa vettvang til þess að gera eitthvað skemmtilegt með börnum og foreldrum barna í 4.-7. bekk.
Ef þið hafið áhuga á að sækja þessi námskeið vinsamlegast klippið skráningarmiðann af og skilið til ritara skólans mánudaginn 2. mars.
Skráningarblað fór heim með nemendum í dag, föstudaginn 27. febrúar
Foreldrar verða að sækja námskeiðið með barni sínu.
Kveðja,
Stjórnendur.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


