4. desember 2008

Ég og þú, þú og ég, við tvö saman

Ég og þú, þú og ég, við tvö saman

Ég og þú, þú og ég við tvö saman námskeið foreldra og barna í 1. – 3. bekkjum lauk nú í vikunni. Við þökkum leiðbeinendum á námskeiðinu kærlega fyrir framlag þeirra.  

Í ár var ákveðið að bjóða upp á þrjár stöðvar þ.e. smákökubakstur, myndarammagerð úr pappamassa, dans og kortagerð. Hver hópur dvaldi eina kvöldstund á hverri stöð. Þátttakendur voru almennt ánægðir með þetta fyrirkomulag því oft hefur verið erfitt að velja eitt námskeið þegar mörg spennandi tilboð eru í boði.

Eitt meginmarkmið námskeiðsins er að gefa foreldrum og nemendum tækifæri á að kynnast öðrum skólafélögum og foreldrum þeirra. Okkur fannst því tilvalið að bjóða fyrst yngstu nemendum skólans og foreldrum þeirra uppá námskeið því innan þessa hóps eru margir foreldrar sem hafa ekki verið með börn í Akurskóla áður.

Námskeiðin stuðla einnig að aukinni samvist foreldra og barna og hefur þar af leiðandi mikið forvarnargildi. Námskeiðin eru þátttakendum að kostnaðarlausu en  reynt er að hafa kostnað vegna framkvæmdar í algjöru lágmarki. Okkur hefur tekist vel að nýta mannauðinn innan skólasamfélagsins við val á  leiðbeinendum á námskeiðin. Þar hafa kennarar og foreldrar veitt okkur lið. Eftir áramót verður námskeið fyrir nemendur á miðstigi og foreldra þeirra.

Ef einhverjir eru með góða hugmynd sem hægt er að nýta á námskeiðinu eða geta veitt okkur lið þá viljum við biðja viðkomandi að hafa samband við okkur. Allar hugmyndir eru vel þegnar.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla