Ég og þú, þú og ég, við tvö saman.
Það ríkti mikil gleði þegar foreldrar og nemendur í 1. – 3. bekk komu saman í nóvember sl. til að taka þátt í verkefninu „Ég og þú, þú og ég, við tvö saman. Þetta verkefni hefur verið árlegur viðburður á vegum Foreldrafélags Akurskóla undanfarin ár og tekist mjög vel. Í ár buðu foreldrar upp á sex smiðjur þ.e.a.s. leiki, minigolf, lærdóm um fugla, krukkumálun og bakstur.
Þetta verkefni er alfarið á vegum foreldra til að auka fjölbreytnina í samstarfi heimilis og skóla. Allir sem að því koma, bæði skipuleggjendur og smiðjustjórar vinna þarna í sjálfboðavinnu. Við viljum þakka þeim foreldrum sem hjálpuðu til við að gera verkefnið spennandi og ánægjulegt. Einnig fær Habbý á skrifstofunni kærar þakkir fyrir hjálpina. Eftir áramót verða smiðjur fyrir 4. – 7. bekk og auglýsum við hér með eftir foreldrum sem hafa áhuga á að vera með smiðjur og taka þátt. Munum að margar hendur vinna létt verk J
Stjórn FFA
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


