Eineltiskönnun haustið 2009 lögð fyrir í nóvember.
Eineltiskönnun haustið 2009 verður lögð fyrir í byrjun nóvember í Akurskóla en búist er við að eineltiskönnun verði lögð fyrir í 60 grunnskólum nú í nóvember.  Í fyrra tóku rúmlega 11 þúsund nemendur þátt. Þetta eru grunnskólar sem taka þátt í Olweusarverkefninu gegn einelti og andfélagslegu atferli.
 
Hvað er einelti?
Við tölum um einelti þegar einstaklingur verður aftur og aftur fyrir neikvæðu og óþægilegu áreiti eins eða fleiri og viðkomandi á erfitt með að verja sig. Um getur verið að ræða beint einelti með höggum, spörkum, blótsyrðum, niðurlægjandi og háðslegum athugasemdum eða hótunum. Það er líka einelti ef stríðni er endurtekin og sá sem verður strítt hefur sýnt að sér mislíki. Óbeint einelti getur líka verið jafn slæmt. Með óbeinu einelti er átt við að maður verði útilokaður frá félagahópnum, verði fyrir illu umtali eða að aðrir komi í veg fyrir að maður eignist vini.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


