Elísabet Anna, Lísa, tilnefnd til Hvatningarverðlauna menntaráðs
Frá Akurskóla var tilnefnt verkefnið Námsver á unglingastigi undir leiðsögn Elísabetar Önnu Gestsdóttur kennara eða Lísu eins og hún er alltaf kölluð. Námsverið er mikilvægt stuðningsúrræði þar sem nemendur fá einstaklingsmiðaða aðstoð bæði námslega og félagslega í rólegu og uppbyggilegu umhverfi. Þar er lögð rík áhersla á vellíðan, sjálfstraust og jákvæð tengsl, auk þess að styðja nemendur í að takast á við áskoranir með uppbyggilegum hætti. Verkefnið hefur þróast í öflugt fyrirmyndarúrræði þar sem nemendur finna fyrir öryggi, virðingu og tilheyra skólasamfélaginu. Á myndinni með fréttinni eru hluti nemenda á unglingastigi sem sækir námsverið hjá Lísu.
Á athöfninni hlutu þrjú verkefni sérstaka viðurkenningu sem áhugaverð og eftirtektarverð: Öflugt og metnaðarfullt frístundastarf í Ösp, Sögupokar í Drekadal og Saman fyrir betri heim á Gimli.
Hvatningarverðlaun menntaráðs að þessu sinni hlaut Heiðarskóli fyrir verkefnið Fab samstarf þar sem sköpunarkraftur nemenda var í forgrunni.
Við óskum öllum sem voru tilnefndir til hamingju.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


