7. nóvember 2008

Endurskinsmerki eru ljós í myrkri!

Endurskinsmerki eru ljós í myrkri!

Miklu máli skiptir fyrir fólk að það sjáist vel í umferðinni í svartasta skammdeginu. Til að auka líkur á því getum við notað endurskinsmerki. Endurskinsmerki eru af ýmsu tagi. Mörg skólabörn eru með þau á skólatöskum, þau eru á utanyfirflíkum og sumir eru með hangandi merki. Til að auka líkur á að ökumenn komi auga á gangandi manneskju í umferðinni þurfa merkin að vera þannig staðsett að bílljósin lýsi á þau í sem mestri fjarlægð.  Þess vegna er gott að hafa þau til dæmis á ermum á úlpum.

 

Nú þegar svartasta skammdegið er að skella á er rétt að minna á mikilvægi endurskinsmerkja fyrir gangandi vegfarendur í umferðinni. Foreldrar eru hvattir til að setja endurskinsmerki á fatnað barna sinna sem oftar en ekki eru dökkklædd á ferð. Þá er ekki síður mikilvægt að fullorðnir noti þennan sjálfsagða og einfalda öryggisbúnað.

 

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla