7. september 2012

Engin er verri þótt hann vökni

Engin er verri þótt hann vökni

Síðasta miðvikudag örkuðu Kálfar og Kiðlingar af stað í veiðiferð þrátt fyrir ausandi rigningu. Farið var að tjörnunum sem eru hér rétt við skólann okkar en þar hafði hún Eydís, starfsmaður Náttúrustofu Reykjaness, lagt nokkrar gildrur fyrr um morguninn. Allir krakkarnir spreyttu sig á að veiða með háfi en það gekk auðvitað mis vel en ekki vantaði veiðiáhugann. Aflinn var síðan borinn upp í skóla þar sem honum var komið fyrir í fiskabúri í kennslurými krakkanna. Næstu daga, vikur og jafnvel mánuði hafa þau tækifæri á að fyljast með, fræðast og skrá niður upplýsingar um það sem fram fer í búrinu.

Sjá myndir í myndasafni.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla