24. febrúar 2011

Ernir á Skólaþingi

Ernir á Skólaþingi

Þriðjudaginn 22. febrúar fóru nemendur í 10.bekk í ferð í höfuðborgina. Þeir heimsóttu Skólaþing þar sem þeir fræddust um starfshætti Alþingis. Farið var í hlutverkaleik og þeir fengu tækifæri til að setja sig í spor þingmanna með því að samþykkja frumvarp og spreyta sig í ræðumennsku.  Frá menningu miðbæjarins lá leiðin í Smáralindina þar sem þeir snæddu á einum veitingastaðnum. Rúsínan í pylsuendanum var bíóferð þar sem nemendur skemmtu sér konunglega og krakkarnir voru Akurskóla til sóma.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla