Ferð að Reykjum
Dagana 20-24 apríl fóru nemendur 7. bekkjar í skólabúðir á Reykjaskóla í Hrútafirði. Nemendur tóku þátt í ýmsum verkefnum á daginn m.a. náttúrufræði, íþróttum, undraheimur auranna, stöðvaleiki og fl. Á kvöldin voru haldnar kvöldvökur þar sem nemendur sáu um að koma með skemmtiatriði og leiki. Á Reykjum hefur tíðkast að hafa hárgreiðslukeppni þar sem stelpurnar greiða strákunum. Þessa vikuna vann nemandi frá okkur keppnina hann Ástþór og sáu hárgreiðslumeistararnir Ingunn Kara, Elva María og Anita Rut um greiðslu og málningu. Nemendur og kennara voru sammála um að ferðin hafi gengið mjög vel og eiga nemendur lof fyrir góða hegðun á meðan á dvöl stóð. Myndir frá ferðinni er hægt að nálgast inn á heimasíðunni.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


