9. maí 2011

Ferðalag 10. bekkjar

Ferðalag 10. bekkjar

Nemendur í 10. bekk fóru í skólaferðalag 4. - 6. maí og héldu norður í land á vit ævintýranna. Veðrið lék við hópinn sem skemmti sér konunglega.  Í Skagafirði hófum við leikinn á klettasigi, þar sem tveir björgunarsveitarmenn sáu um klettasigið og pössuðu að allt gengi vel fyrir sig. Næst var farið í leirdúfuskotfimi skammt frá Sauðárkróki. Félagar úr Skotveiðifélaginu Ósmann tóku á móti okkur með fræðslu um íþróttina og síðan prófuðu nemendur ýmis skotvopn.
Við lukum deginum með pizzaveislu á Kaffi Krók áður en haldið var í Varmahlíð þar sem gist var í svefnpokaplássi í 2 sumarhúsum. Milli húsanna var heitur pottur upphlaðinn úr grjóti, tilvalinn staður til slökunar.


Við tókum skagfirska gæðinga til kostanna á bökkum Svartár, sáum tölvu mjólka kýr, fórum í litbolta á Vindheimamelum og í flúðasiglingu niður  Vestari Jökulsá. Einnig var farið á Hofsós í sund og litið við á bílasafni - Samgönguminjasafni í Óslandshlíðinni.

Við kvöddum Skagafjörð í blíðskaparveðri eftir skemmtilegt ferðalag. Öllum þeim sem styrktu okkur í ferðina eru færðar þakkir fyrir.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla