12. maí 2011

Ferðalag hjá 2-3. bekk

Ferðalag hjá 2-3. bekk

Fimmtudaginn 19. maí verður vorferð hjá krökkunum í 2.-3. bekk. Farið verður með rútu í Sólbrekkuskóg og að Seltjörn. Mikilvægt er að krakkarnir mæti stundvíslega í skólann kl 8:10. Áætluð heimkoma er kl. 13:15.    

Hvað þarf að taka með?
Létt nesti til að drekka um kl. 10:00, t.d. ávöxtur eða brauðsneið.
Við ætlum að grilla pyslur og þeir sem eru í mataráskrift hjá Skólamat fá pylsu og drykk. En þeir nemendur sem ekki eru í áskrift geta fengið pylsu og drykk, annað hvort borga þau 400 kr. eða nota matarmiða. Það þarf að skila peningnum/miðanum til umsjónarkennara í síðasta lagi þriðjudaginn 17. maí.

Eins og alltaf skiptir máli að allir komi klæddir eftir veðri og gott væri að hafa auka sokka og buxur í bakbokanum. Þeir sem eiga lítinn háf mega endilega koma með hann í ferðina því við ætlum að reyna að veiða hornsíli og fleiri smádýr í Seltjörn. 

Svo má auðvitað má ekki gleyma góða skapinu heima 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla