Ferðalag um heiminn - Þemadagar í Akurskóla
Dagana 12. og 13. nóvember fóru fram þemadagar í Akurskóla. Þemað í ár var ferðalag um heiminn. Á þemadögunum var nemendum skipt í hópa sem hver tók fyrir sitt land. Nemendur kynntu sér menningu, tungumál og sérkenni landanna og unnu verkefni út frá því sem þeir lærðu.
Á föstudeginum var foreldrum boðið í skólann að skoða afrakstur vinnunnar. Þar gafst þeim tækifæri til að kynnast löndunum sem nemendur höfðu unnið með og sjá hvernig hver hópur nálgaðist sitt viðfangsefni.
Við þökkum nemendum og starfsfólki fyrir skemmtilega þemadaga og foreldrum sem komu í heimsókn fyrir komuna.
Myndir í myndasafni sýna afrakstur þemadaganna.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


