Fjölmenning
Þessa dagana, 6.-9. október, eru þemadagar. Þemað er Fjölmenning og vinna nemendur alls konar verkefni tengd heimsálfunum. 1. bekkur vinnur verkefni tengd Norður-Ameríku, 2.-3. bekkir Afríku, 4.-5. bekkir Evrópu, 6.-7. Bekkir Asíu, 8.-9. bekkir Suðurskautslandið og 10 bekkur Eyjaálfu. Frístundarskólinn vinnur með Suður-Ameríku. Könnunaraðferðin er notuð við kennsluna og leita krakkarnir sér heimilda í bókum og á Netinu.  Hægt er að sjá myndir á myndasíðu hér til hliðar.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


