Fjölmenningarþema
Í dag lauk Fjölmenningarþema í Akurskóla með sýningu sem haldin var í kennslurýmum og á göngum skólans. Í þemanu voru allar heimsálfurnar undir og nemendur fengu innsýn í ólíka menningarheima og lærðu um lönd og fólk  sem hefur mismunandi menningarlegan bakgrunn, uppruna, þjóðerni o.s.frv. Það voru glaðbeittir nemendur sem tóku á móti foreldrum sínum og sýndu þeim afrakstur vinnu sinnar. Við þökkum öllum þeim foreldrum sem sáu sér fært á að mæta, þrátt fyrir slæma veðurspá, kærlega fyrir komuna.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


