6. mars 2026

Fjörugt tilraunakvöld hjá 8. bekk

Fjörugt tilraunakvöld hjá 8. bekk

Í gær var haldið skemmtilegt tilraunakvöld hjá 8. bekk þar sem nemendur buðu foreldrum sínum í heimsókn í skólann. Þar gafst foreldrum og nemendum tækifæri til að prófa ýmislegt sem nemendur hafa verið að læra í náttúrufræði, samfélagsfræði og upplýsingatækni.

Foreldrar spreyttu sig meðal annars á spurningakeppni sem nemendur höfðu sjálfir búið til og reyndu þau að komast að því hvort þau væru skarpari en skólakrakkar.

Í heimsókninni gátu foreldrar og nemendur einnig prófað ýmsar tilraunir. Þar á meðal var hægt að tengja rafrásir, búa til rafsegul og bæði búa til koltvísýring ásamt því að slökkva kertaloga með koltvísýringnum.

Nemendur höfðu líka útbúið plaköt um alls konar lífverur sem foreldrar og nemendur gátu skoðað og fræðst um. Tilraunakvöldið heppnaðist vel og var gaman að fá foreldra í hópefli.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla