Flóamarkaður Foreldrafélags Akurskóla
Flóamarkaður Foreldrafélags Akurskóla
Nú er tækifærið að taka til í skápunum. Við auglýsum eftir fötum og skóm til  endurnotkunar og styrktar góðu málefni. Foreldrafélagið mun halda flóamarkað í Akurskóla, helgina 29. og 30. nóvember  kl. 11.00 - 16.00.  Allt verður selt á gjafverði.  Ágóðinn rennur í ferðasjóð nemenda.
Foreldrar geta komið með föt og skó á skrifstofu skólans
(eða sent krakkana með það) vikuna 24.-28. nóvember. 
Allir velkomnir. Vonumst til að sjá sem flesta.
Stjórn Foreldrafélags Akurskóla
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


