Flöskuskeyti
 
Bréfið sem okkur barst í tölvupósti nú í vikunni:
Kristófer Jónsson heiti ég og er sjómaður á netabátnum Ísak AK 67 á Akranesi.
Klukkan 03:00 fór ég ásamt Eið Ólafssyni Skipstjóra frá Akranesi og var ferðinni heitið á Arnarstapa þaðan sem báturinn er gerður út um þessar mundir, við héldum úr höfn um kl 05:00 og héldum af stað á miðin að draga trossurnar okkar sem eru um 9 sjómílur SSA af Arnarstapa, dagurinn gekk nokkuð vel og veiði ágæt og að drætti loknum héldum við af stað í land.
Það var þung undiralda á sjónum og búið að vera talsvert mikið brim síðustu daga, við kláruðum að landa aflanum og fórum svo í það að binda bátinn, en þá vað mér litið á blöðruþangshrúgu í höfninni og sá þar 2 plastflöskur í henni, ég var sodið hissa á þessu drasli þarna þar sem Arnarstapahöfn er fánahöfn en hugsaði með mér að þetta hefði borist hingað með briminu, ég tók eftir því að önnur flaskan var tóm kókflaska en hin fannst mér einhvað skrýtnari, ég sá að hún var ferköntuð vatnsflaska oh var hvítglansandi að lit og ég vissi vel að þessar flöskur væru glærar.
Ég spáði svo ekkert meir í þessu næsta korterið meðan við kláruðum að ganga frá bátnum en þegar við vorum að setja upp frammenda var ég enn að hugsa um þessa flösku og búinn að rýna mikið í hana, svo ákvað að ná í hakann og reyna að ná flöskunni, ég náði henni með töluverðu basli, ég þurfti að byrja á að kasta spotta utanum hana og draga hana nær bátnum svo ég næði henni með hakanum en það tókst fyrir rest.
Ég áttaði mig strax á því að þetta væri flöskuskeyti þegar ég fékk það í hendurnar.
Bréfið er dagsett 1. des 2011 og er það í tilefni þess að þið voruð að vígja einhvað hús, bréfið er skrifað af Gunnhildi Björgu Baldursdóttur og eru svo fullt af litlum miðum með fleiri nöfnum á, sumir skrifa að þeir séu í 7 bekk. hér eru nöfnin :
Alexandra Ósk Guðmundsdóttir, Tinna Hauksdóttir, Tanija, Kristján Þórarinn, Eydís Ósk, Marih, Bryan, Laura Toft, Haukur Karel Hauksson.
Endilega sendið mér línu þegar þið hafið fengið þennan póst :)
Bestu kveðjur Kristófer Jónsson
PS: ég sendi flöskuskeyti þegar ég var 8 ára og fékk afa minn til að taka það með sér á sjóinn og kasta því en hef enn ekki fengið svar )
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


