19. janúar 2009

Flott án fíkna

Flott án fíkna

Föstudagskvöldið 16. janúar sváfu krakkarnir í forvarnarhópnum “ Flott án fíkna” í Akurskóla. Krakkarnir mættu hálftíu um kvöldið  og fóru heim um níuleytið daginn eftir. Eins og sjá má á myndunum þá var mikið fjör hjá þeim. Samkvæmt dagskrá áttu allir að vera komnir í ró um tvöleytið og sofnaðir í síðasta lagi klukkan þrjú. Það varð þó ekki raunin, þar sem stemmningin og svefngalsinn réðu ríkjum fram eftir morgni. Þetta heppnaðist mjög vel í alla staði og eiga krakkarnir hrós skilið fyrir góða og jákvæða hegðun alla nóttina.  

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla