20. apríl 2012

Fólkið í háhýsinu.

Fólkið í háhýsinu.

Nemendur úr 8. – 10. bekk Akurskóla sem hafa verið í leiklistarvali í vetur verða með tvær leiksýningar í næstu viku.   Nemendurnir hafa æft upp þrjú örleikrit og einþáttung.  Þau kalla sýninguna „Fólkið í háhýsinu“.   Leikstjóri er Sólveig Rögnvaldsdóttir.

Sýningarnar verða í skólanum þriðjudaginn 24. apríl og fimmtudaginn 26. apríl og hefjast klukkan 20:30.   Aðgangseyrir er kr. 500.- og rennur ágóði til verkefnisins „Flott án fíknar“ en verkefnisstjóri þess í Akurskóla er Lovísa Hafsteinsdóttir námsráðgjafi.  Á sýningunni verður einnig hægt að kaupa veitingar sem nemendur í „Flott án fíknar“ hópnum munu sjá um.

Við hvetjum foreldra, vini  og aðra vandamenn nemenda í Akurskóla til þess að sýna stuðning sinn í verki og fjölmenna á sýningarnar.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla