25. apríl 2012

Fólkið í háhýsinu

Fólkið í háhýsinu

Leiklistarval Akurskóla sýnir þrjú örleikrit og einþáttung á morgun 26. apríl.

Nemendur úr 8. – 10. bekk Akurskóla sem hafa verið í leiklistarvali í vetur verða með leiksýningu á morgun, fimmtudaginn 26. apríl. Nemendurnir hafa æft upp þrjú örleikrit og einþáttung.  Þau kalla sýninguna „Fólkið í háhýsinu“.   Leikstjóri er Sólveig Rögnvaldsdóttir.
Sýninginn verður í skólanum  fimmtudaginn 26. apríl og hefst klukkan 20:30.   Aðgangseyrir er kr. 500.- og rennur ágóði til verkefnisins „Flott án fíknar“ en verkefnisstjóri þess í Akurskóla er Lovísa Hafsteinsdóttir námsráðgjafi.  Á sýningunni verður einnig hægt að kaupa veitingar sem nemendur í „Flott án fíknar“ hópnum munu sjá um.
Við hvetjum foreldra, vini  og aðra vandamenn nemenda í Akurskóla til þess að sýna stuðning sinn í verki og fjölmenna á sýninguna.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla