Foreldrafélag Akurskóla færði skólanum gjöf
Þær komu færandi hendi í gær þær Hulda Klara Hjaltadóttir og Guðmunda Hergeirsdóttir þegar þær sem fulltrúar Foreldrafélags Akurskóla færðu skólanum að gjöf örbylgjuofn og tvö mínútugrill. Stjórnendur skólans veittu gjöfinni viðtöku en tækin eru ætluð fyrir nemendur og verða staðsett í matsal skólans. Þess má geta að það voru nemendur í Akurskóla sem leituðu til Foreldrafélagsins um að bæta tækjakost í nestisaðstöðu þeirra sem brást skjótt við.  Við þökkum fyrir góða gjöf og gott framtak. 
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


