Forskólatónleikar
Forskólatónleikar
Hinir árlegu skólatónleikar Forskóladeildar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða haldnir á sal Akurskóla, mánudaginn 8. mars kl. 10.05 – 10.35.  Þar koma fram nemendur í Forskóla 2,
(2. bekkur) ásamt lúðrasveit og rokkhljómsveit, skipuðum nemendum í  Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Einnig verða kvöldtónleikar með sömu efnisskrá í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur, þriðjudaginn 9. mars kl. 19.30.  Þá bætast í hópinn nemendur í forskóla 2 úr öllum hinum grunnskólum bæjarins.  Á sviðinu verða því á þriðja hundrað hljóðfæraleikarar. 
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


