Forvarnardagurinn í Akurskóla
Forvarnardagurinn var haldinn í fimmta sinn miðvikudaginn 3. nóvember að frumkvæði hr. Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands. Unglingadeildin í Akurskóla tók virkan þátt í því verkefni og hlustaði á ávarp forsetans af myndbandi en síðan horfðu þau á myndband um unglinga og íþrótta- og æskulýðsstörf. Á myndbandinu var rætt við nokkra þekkta einstaklinga sem hvöttu nemendur til að lifa heilbrigðu lífi og hafna neyslu áfengis og annarra vímuefna.
Nemendum var skipt í hópa til að svara spurningum úr þremur flokkum.
Umræðuefni unglinganna var: Hvert ár skiptir máli, Samvera og Íþrótta- og æskulýðsstarf.
Spurningarnar voru:
1.       Hvað græðir þú á því að drekka ekki áfengi á unglingsárunum?
2.       Hvaða stuðningur telur þú að sé bestur til að byrja ekki að drekka á unglingsárunum?
3.       Hvaðan kemur þrýstingur á unglinga til að hefja áfengisneylsu að þínu mati?
4.       Hverjar telur þú helstu ástæður þess að krakkar taki þátt í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi?
5.       Hvernig íþrótta- og æskulýðsstarf mynduð þið vilja sjá þar sem fjölskyldan gæti tekið þátt saman?
6.       Er eitthvað sérstakt sem hefur vakið athygli þína í tengslum við íþrótta- og æskulýðsstarf undanfarið? Hvað þá?
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


