Frá skólaslitum
Það voru glaðir nemendur sem gengu út í sumarið að loknum skólaslitum í Akurskóla sem  fram fóru miðvikudaginn 1. júní.  Allir nemendur fengu afhent hrósblöð með umsögnum frá nemendum og kennurum skólans.  Dagurinn endaði á útskrift 10. bekkinga, 19 nemendur luku prófi frá skólanum en Akurskóli útskrifaði nú nemendur úr 10. bekk öðru sinni.   Útskriftarnemendur skólans fengu afhenta bókina Þjóðsögur við þjóðveginn eftir Jón R. Hjálmarsson  í tilefni dagsins.  Á meðfylgjandi mynd eru útskriftarnemendur, skólastjóri, aðstoðarskólastjóri ásamt þeim kennurum sem voru heiðraðir eftir 5 ára farsæl störf við skólann.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


