20. október 2026

Frábær árangur í hreyfingu hjá nemendum Akurskóla

Nemendur Akurskóla hafa staðið sig frábærlega í hreyfingu! Í Ólympíuhlaupi ÍSÍ hlupu nemendur samtals 1.710 kílómetra, sem jafngildir 5,3 kílómetrum að meðaltali á nemanda.

Þeir bekkir sem hlupu lengst að meðaltali á hverju stigi voru:

  • Yngsta stig: 4. bekkur – 5,1 km.
  • Miðstig: 7. bekkur – 6,9 km.
  • Elsta stig: 8. bekkur – 7,2 km.

Nemendur tóku einnig þátt í átakinu Göngum í skólann, þar sem nemendur eru hvattir til þess að nota virkan ferðamáta til og frá skóla. Sigurvegarar á hverju stigi voru 3. bekkur á yngsta stigi, 6. bekkur á miðstigi og 8. bekkur á elsta stigi.

Við óskum vinningshöfunum til hamingju og þökkum öllum nemendum fyrir þátttökuna. 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla