6. janúar 2016

Fræðsluátak

Fræðsluátak

Nú er skólinn byrjaður og þá hefst starf foreldrafélagsins einnig Okkur í bauðst að sýna foreldrum upptöku frá fyrirlestri Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur um sexting, hrelliklám og netið. Margir hafa kallað eftir vitundarvakningu til að stemma stigu við nektarmyndum af íslenskum börnum sem ganga manna á milli á netinu. Myndirnar eru í sumum tilvikum afleiðing af sexting, sem krakkar í dag iðka án þess að gera sér grein fyrir hugsanlegum afleiðingum. Þórdís ákvað að láta ekki sitt eftir liggja, setti saman vandaðan fyrirlestur um sexting og flutti hann fyrir foreldra í fjölmörgum skólum. Átakið hófst í lok janúar sl. og heimsótti Þórdís alla grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og víða á landsbyggðinni. Markmiðið var að fræða foreldra, benda á leiðir til að fyrirbyggja að barn þeirra verði fyrir skaða og ræða hvernig best er að bregðast við ef sexting-mál kemur upp. Einn fyrirlestranna var tekinn upp og nú höfum við tækifæri til að bjóða foreldrum barna í Akurskóla að sjá upptökuna sem er um klukkutími að lengd. Allir foreldrar eru velkomnir (ekki bara unglingaforeldrar) enda mikilvægt að kynna sér áskoranir sem fylgja tækninýjungum hið allra fyrsta þó börnin séu enn ung að árum. Forvarnir virka best ef þær eru til staðar áður en hættuna ber að garði. Við munum sýna fyrirlesturinn miðvikudaginn 13. janúar kl. 20:00 í sal Akurskóla. Kaffi og meðlæti verður í boði foreldrafélagsins. Við hlökkum til að sjá sem flesta. Kveðja, Stjórn Foreldrafélags Akurskóla

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla