Fræðslumyndband um manninn
Miðvikudaginn 27. ágúst horfðu unglingar 8.-9. bekkjar á fræðslumyndband um manninn og hvaða áhrif hann hefur á umhverfi sitt. Það var margt alveg ótrúlegt sem kom fram í myndinni, s.s. að menn nýta umbúðir afar illa, Vesturlandabúi drekkur tæplega 8000 lítra af mjólk, meðalmaður eignast 8 bíla, maður borðar að meðaltali fjórar kýr, fimmtán svín, tuttugu og eina kind og tæplega eittþúsund og fimmhundruð kjúklinga. Og einnig að það tekur jafnmikla orku og efnivið að búa til eina tölvu og einn bíl og maður notar yfir 28.000 klósettrúllur yfir ævina. Þetta var afar fróðlegur þáttur sem brá ljósi á neyslu venjulegs meðalmanns á Vesturlöndum.
Helga Vala, Andrea Björt, Kolbrún Sigríður, 8. bekk og Erla Ósk, 9. bekk.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


