30. september 2015

Frestur framlengdur til 6. október - Akurskóli efnir til samkeppni um skólasöng, lag og texta.

Frestur framlengdur til 6. október - Akurskóli efnir til samkeppni um skólasöng, lag og texta.

Akurskóli efnir til samkeppni um skólasöng í tilefni af 10 ára afmæli skólans. Lagið verður frumflutt á afmæli skólans 9. nóvember 2015.

Lagið þarf að vera í þægilegri söngtóntegund og textinn þarf að einhverjum hluta að passa einkennisorðum skólans.

Einkennisorð skólans eru: Börn eru gleðigjafar, skapandi og fróðleiksfús.
Skilafrestur er til 1.október 2015.

Tillögum skal skilað rafrænt á geisladiski eða gagnalykli. Tillögur þurfa að vera merktar með dulnefni eða númeri og þeim skal fylgja seðill með nafni í lokuðu umslagi. Umslagið skal merkt sama dulnefni eða númeri og tillagan.

Veitt verða verðlaun að upphæð 50 þúsund krónur fyrir það lag sem verður valið.

Í dómnefnd verða 5 aðilar; fulltrúi starfsmanna, fulltrúi nemenda og fulltrúi foreldra nemenda í Akurskóla, skólastjóri og fagaðili.

Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Akurskóla, Sigurbjörg Róbertsdóttir í síma 4204550. Netfang; sigurbjorg.robertsdottir@akurskoli.is

Tillögum skal skilað til skólastjóra Akurskóla.

Heimilisfang:

Skólastjóri Akurskóla
Tjarnarbraut 5
260 Reykjanesbæ
 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla