16. apríl 2008

Fréttir frá Akurskjóli

Fréttir frá Akurskjóli

Loksins erum við komin af stað með heimasíðuna okkar í Akurskjóli. Starfið hefur gengið vel hjá okkur undanfarið enda “ frábærir krakkar”. Við höfum fengið til liðs við okkur nýjan starfsmann en það er hún Fríða sem er skemmtileg ung kona.  Íþróttastarfið hefur gengið sinn vanagang, en eitthvað hefur þó verið um það að krakkarnir gleyma sundfötum heima og því ekki komist á æfingar.

 

Vikuna 13. mars fórum við í heimsókn í nýju félagsmiðstöðina Fjörheima. Hafþór Birgisson, forstöðumaður Fjörheima bauð okkur að koma og njóta alls sem þar er í boði, m.a. bíósalur, diskótek, playstation, þythokkí, billjardborð, borðtennis og tölvur. Þetta var frábær ferð og er ætlun okkar að fara fljótlega aftur og hafa gaman. Þau börn sem hafa hug á að nýta sér frístundaskólann næsta ár eru vinsamlegast beðin um að sækja sem um fyrst, svo hægt verði að ráðstafa starfsfólki fyrir næsta skólaár, því útlit er fyrir miklum fjölda barna hjá okkur.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla