Fréttir frá Reykjum
Hér á Reykjum gengur allt vel. Í gær var bylur, en við létum það ekkert á okkur fá og fórum í Bingó, því öllu starfi utanhúss var frestað. Dvölin hér hefur verið alveg hreint afburðargóð, krökkunum finnst maturinn alveg geggjaður og starfsmenn eru okkur ákaflega góðir. Það er þægilegt andrúmsloft í hópnum og góð jákvæðni. Hinn hópurinn er krakkar úr Salaskóla og góð tengsl hafa myndast á milli. Kvöldvökurnar hafa gengið mjög vel og allir hafa tekið þátt í þeim. Nemendur hafa verið duglegir að koma sjálfir með þrautir og leiki og setja þá upp.
Á eftir er hárgreiðslukeppnin þar sem stelpurnar greiða strákunum og skólastjórinn velur sigurvegarann. Það er sko mikil spenna í hópnum fyrir þessa keppni sérstaklega þar sem við höfum titil að verja eftir að hafa farið með sigur af hólmi í fyrra:-)
Síðasta kvöldvakan er í kvöld en hún endar með diskói. Mikil spenna er fyrir því og flestar stelpurnar tilbúnar með kjólana og strákarnir með gelið í hárið:-)
Hlökkum til að koma heim en verðum að kveðja núna því við erum svo upptekin við að skemmta okkur og læra fullt af nýjum hlutum:-)
Koss og knús frá Reykjum Elín Rós, Sólveig og frábærir nemendur úr 7.bekk
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


