Fréttir frá Reykjum
Nú eru krakkarnir komnir að Reykjum í Hrútafirði. Vel var tekið á móti okkur af starfsfólki og nemendum frá öðrum skólum. Nemendur fengu að vita í hvaða herbergi þeir ættu að vera og með hverjum. Allir voru glaðir með sín herbergi og strax var tekið upp úr töskum. Sumir skreyttu herbergin sín (stelpurnar) en strákarnir voru snöggir að koma sér fyrir. Nemendur Akurskóla hafa verið til fyrirmyndar í skólabúðunum, hegða sér vel og eru kurteisir. Allir eru spenntir að kynnast nýjum krökkum og margir eiga eftir að eignast nýja vini.
Bestu kveðjur frá Reykjum.
                          Nemendur, Sólveig og Jóka.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


