28. nóvember 2008

Fréttir úr starfinu í nóvember.

Fréttir úr starfinu í nóvember.

Grímuball

Grímugerð og grímuball var eitt af því sem var í boði á óvæntum föstudegi í nóvember. Eftir kaffi var börnunum boðið að föndra grímur sem þau síðan notuðu á  grímuballi í salnum okkar. Eins og fram kemur á þessum myndum vantaði ekki hugmyndaflugið hjá þeim og má segja að margar hverjar grímurnar hafi verið hrein listaverk. Börnin mættu síðan inn í sal og var dansað og farið í leiki fram að lokun. Mjög skemmtilegur dagur.

 

Fjöruferð í Kópuna 

Farið var í fjöruferð þar sem börnin týndu skeljar, steina og ýmsa aðra skemmtilega hluti. Það sem þau týndu var síðan málað og límt á pappa. Það kom margt skemmtilegt fram í þessari ferð okkar. Sumir voru pínu hræddir á meðan að aðrir hlupu um fjöruna og tíndu allt sem hægt var að tína. Það var ákveðið að fara aftur mjög fljótlega og reina þá að ná í lifandi krabba.  

Sjá myndir í myndasafni undir Akurskjól

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla