15. maí 2026

Freyjur afhentu Akurskóla snjallskjá

Freyjur afhentu Akurskóla snjallskjá

Miðvikudaginn 13. maí afhentu Freyjur, Lionsklúbbur kvenna í Reykjanesbæ, Akurskóla formlega nýjan snjallskjá sem mun nýtast í kennslu og starfi skólans.

Við í Akurskóla viljum færa Freyjum okkar bestu þakkir fyrir þennan mikilvæga stuðning. Freyjur hafa um árabil styrkt fjölmörg verkefni í samfélaginu fyrir háar fjárhæðir og fjármagna starf sitt að stórum hluta með sölu á vinsælum nammikrönsum sem þær hnýta og selja fyrir jólin.

Stuðningur sem þessi skiptir skólastarf miklu máli og er mikils metinn af nemendum og starfsfólki Akurskóla.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla