Friðarhlaupið 2009
Starfsfólk Akurskóla óskar Bjarka Snæ Smárasyni hjartanlega til hamingju en mynd hans var valin úr hópi 572 mynda til að vera ein sjö fulltrúa Íslands í alþjóðlegri myndasýningu Friðarhlaupsins. Myndin mun nú ferðast með sýningunni vítt og breitt um heiminn í sumar og haust. Öllum nemendum Akurskóla er boðið á opnun alþjóðlegu myndasýningar Friðarhlaupsins á Íslandi sem fer fram í Kringlunni 16. júlí kl. 10. Öllum nemendum er einnig boðið á opnun sýningar á myndum frá Akurskóla og Heiðarskóla í Bíósal Duushúsa miðvikudaginn 15. júlí kl. 12. Heimasíða friðarhlaupsins er http://www.worldharmonyrun.org/iceland
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


