18. september 2012

Fuglaskoðunarferð

Fuglaskoðunarferð

Kiðlingar lögðu land undir fót og fóru að heimsækja fuglana sem búa á tjörnunum á Fitjunum. Byrjað var á að taka strætó þangað þar sem við þurftum að vera komin heim í skóla á réttum tíma í hádegismatinn. Það voru nú ekkert rosalega margir fuglar en líklega hafa þeir bara verið ennþá sofandi blessaðir. Það voru samt nokkrar hræður sem þáðu brauð frá krökkunum. En þarna fundust dánir fuglar sem var safnað saman í eina gröf, svo þeim myndi ekki leiðast einum, og tóku flestir þátt í jarðarförinni. Það var auðvitað heilmikið spáð í hvaða tegund þessir fuglar voru og af hverju þeir hefðu dáið. Hvort þeir hefðu veikst, borðað eitthvað hættulegt eða orðið mjög gamlir og dáið úr elli. Það er eitthvað sem verður rannsakað nánar. En þessa dagana eru krakkarnir að læra um lundann og bæta svo þremur öðrum fuglum við á jafn mörgum vikum.
Í svona ferðum er voðalega gaman að geta tekið nesti með og ekkert verra að fá heitt kakó. Alla vega kunnu börnin að meta það.
Það var að sjálfsögðu komið aðeins við í Stekkjarkoti og farið í nokkra leiki á Víkingavöllum. Það er nú drjúgur spotti að ganga þessa leið en þessir krakkar eru alveg hörku dugleg og engar kvartanir heyrðust frá þeim

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla