Fulltrúa Akurskóla í Stóru upplestrarkeppninni
Í vetur hafa nemendur í 7. bekk verið að æfa sig í framsögn og upplestri sem er liður í Stóru upplestrarkeppninni. Í febrúar tóku þeir þátt í bekkjarkeppnum þar sem 8 fulltrúar voru valdir til að keppa í skólakeppninni um að verða fulltrúar Akurskóla á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem verður haldin í Berginu 6. mars.
Í skólakeppninni sem haldin var á sal 27. febrúar voru Sara Antonía Magneudóttir og Þórhildur Erna Arnardóttir valdar sem fulltrúar skólans og til vara Alexander Logi Jónsson.
Dómarar í keppninni voru Gunnar Þór Jónsson fyrrverandi skólastjóri í Reykjanesbæ, Guðný Ósk B Garðarsdóttir kennari og Elva Björk Elvarsdóttir kennari.
Valið var ekki auðvelt hjá dómurum keppninnar en þátttakendur stóðu sig allir mjög vel sem og áhorfendur en það voru nemendur í 6. og 7. bekk.
Við óskum nemendum til hamingju og góðs gengis í lokakeppninni.
Fleiri myndir í myndasafni.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.