30. september 2009

Fundur með bæjarstjóra

Fundur með bæjarstjóra

Fundur Árna Sigfússonar bæjarstjóra með nemendum í Akurskóla var haldinn í morgun. Bæjarstjóri kynnti hugmyndir sem bárust í hugmyndasamkeppni um umhverfisverkefni í bæjarfélaginu og nemendum gafst kostur á að spyrja um ýmis verkefni eða koma með hugmyndir um ný. Bæjarstjóri ræddi hlutverk bæjarins og lagði áherslu á umhverfi og öryggi nemenda. Nemendur höfðu mikinn áhuga á störfum bæjarstjórans og lögðu til ýmsar hugmyndir um verkefni eins og fuglahús við strandir, móa og tjarnir, Leikjagarð og húsdýragarð. Einnig höfðu þau áhuga á fjölbreytni íþrótta- og menningartilboða, strætóferðum, félagsstarfi í skólum, pandabirnum og fallturnum, hreystibrautum og margt fleira má telja.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla