17. apríl 2012

Fyrir umhverfið og okkur

Fyrir umhverfið og okkur

Í gær, mánudaginn 16. apríl kom Jóhann Karl Sigurðsson deildarstjóri hjá Hringrás færandi hendi með fræðsluefni fyrir skólann. Það var dvd diskurinn „Fyrir umhverfið og okkur“. Á diskinum er myndskeið um skil á notuðum rafhlöðum til endurvinnslu. Einnig færði hann okkur ílát til að safna notuðum rafhlöðum í. Annars vegar er um að ræða pappaöskjur fyrir heimilin sem munu berast heim með nemendum næstu daga. Hins vegar fékk skólinn afhent stærra ílát til þess að safna notuðum rafhlöðum í. Við þökkum kærlega fyrir þetta framtak Hringrásar og munum nýta þetta í áframhaldandi vinnu við verndun umhverfisins.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla