18. febrúar 2013

Fyrirlestur um ofbeldi gegn börnum

Fyrirlestur um ofbeldi gegn börnum

Miðvikudaginn 20.febrúar ætlar FFGÍR (Félag foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ) í samstarfi við foreldrafélög leikskólanna í Reykjanesbæ að bjóða upp á fyrirlestur um ofbeldi gegn börnum. Fyrirlesturinn verður haldin í Fjölbrautaskóla Suðurnesja kl. 20.00 - 21.00.


Fyrirlesturinn er fyrir foreldra og aðra sem bera ábyrgð á börnum. Sigríður Björnsdóttir, Blátt áfram, mun flytja erindi og svara fyrirspurnum. Við vonum að það verði fjölmenni á fyrirlesturinn sem er öllum opinn.

Stöðvum ofbeldi gegn börnum og verum upplýst! 
 
 
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla