29. ágúst 2008

Fyrsta skólavikan á enda

Fyrsta skólavikan á enda

Það er gaman að byrja í skólanum!
 
Nú fer fyrstu skólaviku skólaársins 2008-2009 senn að ljúka. Skjólabyrjun hjá nemendum í Hvolpum, Kettlingum og Húnum, sem eru  yngstu nemendur skólans, hefur gengið vonum framar. Aðrir nemendur hafa einnig tekið skólabyrjun vel og viljum við minna eldri nemendur skólans á að taka vel á móti nýjum nemendum sem eru að hefja skólagöngu sína við Akurskóla. Það er alltaf erfitt að koma inn í nýtt umhverfi og kynnast nýju fólki sama hver aldurinn er.
Mánudaginn 1. september hefst vistun sex ára barna sem sóttu um frístundaskólann Akurskjól en eldri nemendur hafa nú þegar byrjað þar. Í ár verður sú nýbreytni að íþróttaskóli verður starfræktur fyrir nemendur 1. bekkjar, sem dvelja í Akurskjóli á vegum íþróttafélaganna í Reykjanesbæ, í íþróttamiðstöðinni okkar. Akstur nemenda á vegum frístundaskólans, fyrir þennan aldursflokk til íþróttaiðkunar í önnur hverfi bæjarins, verður þá lagður niður. Markmiðið með þessum breytingum er fyrst og fremst að auðvelda aðgengi barna til íþróttaiðkunar. Þó munu sundfélögin standa fyrir utan þetta verkefni en það er lítið mál fyrir nemendur Akurskóla að sækja sundæfingar hjá íþróttafélagi Njarðvíkur því þær fara fram í sundlauginni við skólann.
Það eru vinsamleg tilmæli okkar að foreldrar hugi vel að lengd vinnudags barna sinna og reyni eftir fremsta megni að takmarka hann við átta stundir. Viðvera frá kl. átta að morgni til kl. fimm síðdegis hljóðar upp á níu klukkustunda vinnudag. Við skiljum vel að aðstæður fólks eru mismunandi og sumir foreldrar þurfa að nýta sér vistunartíma til fimm á daginn vegna eigin atvinnu. 
 
Framkvæmdir á húsnæði skólans hafa aðeins raskað skólahaldi. Nú er verið að leggja lokahönd á uppsetningu innréttinga í textíl- og myndlistarstofu og munum við taka þær í notkun eftir helgi. Við höfum nýtt raungreinastofurnar og bókasafnið til bekkjarkennslu á unglingasigi síðustu daga en það styttist óðum í að kennslurými þeirra verður tilbúið til notkunar.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla