30. ágúst 2010

Fyrstu skólavikunni lokið

Fyrstu skólavikunni lokið

Fyrstu skólavikunni lokið

Akurskóli var settur mánudaginn 23. ágúst. Að þessu sinni eru um 380 nemendur í Akurskóla og um 50 starfsmenn. Þessi fyrsta vika fór vel af stað enda höfðu kennarar og aðrir starfsmenn unnið kappsamlega við að undirbúna nám og kennslu í vetur. Segja má að þeir hafi verið að undirbúa jarðveginn en Guðmundur Finnbogason höfundur fræðslulaganna 1907 sagði að kennarar væru „akuryrkjumenn á andans akri þjóðarinnar, þeim er falið í hendur að búa barnsálirnar undir lífið og gróðursetja fræin sem framtíð þjóðarinnar sprettur upp af.” Þessi orð Guðmundar tökum við í Akurskóla okkur til fyrirmyndar og í vetur munum við aðstoða nemendur við að rækta ólíka hæfileika sína og ná markmiðum sínum því það er ekki síst þannig sem við undirbúum barnsálirnar undir lífið og eflum framtíð þjóðarinnar!

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla