6. október 2008

Fyrstu tónmenntasmiðju lokið

Fyrstu tónmenntasmiðju lokið

Þá hefur fyrsti hópurinn í 6.-7. bekk lokið tónmenntasmiðju. Sá hópur var alfarið skipaður stúlkum og allar höfðu þær nóg fyrir stafni. Þær kynntust hippatímabilinu lítillega, fræddust um valda íslenska tónlistarmenn og útbjuggu eigin kynningar á erlendum tónlistarmönnum. Stúlkurnar kynntu sér Elvis, ABBA, Billy Ray Cyrus og Queen og fræddu svo bekkjarsystur sínar með glærusýningu og myndbandabrotum. Einnig gerðu þær veggspjöld um sína tónlistarmenn sem hanga nú uppi í Akurskóla.

Auðvitað var sungið, sungið og sungið. Til að ljúka smiðjunni stóðu stúlkurnar uppi á sviði í samsöng síðasta föstudag og leiddu sönginn. Það heppnaðist með ágætum og þær mega vera hæstánægðar með sig.

Myndir úr smiðjunni eru í myndasafni tónmenntakennslunnar sem opnast ef þú smellir hér.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla