12. september 2008

Gönguklúbbur Akurskóla

Gönguklúbbur Akurskóla

Stofnun gönguklúbbs foreldra, nemenda og kennara Akurskóla fór fram á sal skólans þann 10.september. Þegar er komin dagskrá fyrir haustið en fyrsta gönguferðin verður sunnudaginn 14. september.

Nánari lýsing: Við hittumst fyrir utan Akurskóla og ökum að Höskuldarvöllum rétt við Keili.  Þaðan ætlum við að ganga Lambafellsklofið sem kemur manni skemmtilega á óvart. Vonandi finnum við ber á leiðinni. Takið með ykkur berjaílát og að sjálfsögðu nesti. Þetta er létt ganga en munið að gott er að vera í góðum skóm.

Dagsetning: Sunnudagur þann 14. september lagt af stað frá Akurskóla  kl. 11:00

Hvert:Lambafellsklofið

Áætlaður tími: 2 - 3 klukkustundar ganga + akstur

Ábyrgðarmaður: Anna Wahlström

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla