Gönguklúbbur Akurskóla
Gönguklúbbur Akurskóla hvetur foreldra til að mæta með börn sín í Þórkötlustaðarétt laugardaginn 20. september. Það er mikil upplifun að fylgjast með rekstri safnsins inn í bæinn og þegar fjárbændur draga fé í dilka. Við hittumst við Akurskóla og förum þaðan kl.13:30 stundvíslega.
Réttardagurinn í Þórkötlustaðarétt í Grindavík verður laugardaginn 20. september.
Smalað verður á afrétti Grindvíkinga, föstudaginn 19. september og dregið verður í dilka laugardaginn 20.september um kl.14.00.
Réttardagurinn er einn af þeim dögum sem bjóða upp á líf og fjör jafnt fyrir börn og fullorðna. Ratleikurinn "Finna féð" verður á dagskrá í nágrenni við réttina. Leikurinn gengur út á að svara léttum spurningum um sauðkindina og geitina. Dregið verður úr réttum svörum og þrír ullarvinningar í verðlaun. Í Auðsholti verður boðið upp á kjötsúpu í stóru tjaldi og haustmarkaður verður í anddyri reiðhallarinnar.



Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


